Úr stefnuskrá Hreyfingarinnar:

Forsíða            Fréttir            Stefnan            Hreyfingin            Á döfinni
Yfirlýsing varðandi umfjöllun um fjármál stjórnmálasamtaka
Miðvikudagur, 07. desember 2011 15:13

Í morgunþætti Bylgjunnar þann 7. desember 2011 var rætt við Lilju Mósesdóttur, óháðan þingmann, um fjármál stjórnmálasamtaka.

Um leið og við lýsum yfir ánægju með að Lilja skuli nú ganga fram fyrir skjöldu í þessum málaflokki með því að benda á þann lýðræðishalla sem fyrir er og að fjölmiðlar taki málið til umfjöllunar  viljum við koma eftirfarandi á framfæri:

 

  • Það er ekki rétt hjá Lilju að Borgarahreyfingin og Hreyfingin fái um 30 milljónir úr ríkissjóði.  Hið rétta er að Hreyfingin fær ekkert úthlutað úr ríkissjóði og hefur aldrei fengið.
  • Það er ekki rétt hjá Lilju að ef það komi fram nýtt framboð fái það ekkert úr ríkissjóði nema það nái inn manni í kosningum.  Hið rétta er að samkvæmt lögum um fjármál stjórnmálasamtaka geta stjórnmálasamtök sem bjóða fram í öllum kjördæmum í kosningum til Alþingis, að loknum kosningum, sótt um sérstakan fjárstyrk úr ríkissjóði til að mæta útlögðum kostnaði við kosningabaráttu, að hámarki 3 millj. kr. óháð þeim árangri sem viðkomandi stjórnmálasamtök ná í kosningum.
  • Þá er ástæða til að taka fram varðandi það fylgi sem þarf til að komast á fjárlög er miðað við einn mann kjörinn á Alþingi eða a.m.k. 2,5% atkvæða í næstliðnum alþingiskosningum samkvæmt ákvörðun á fjárlögum hverju sinni. Fjárhæðinni skal úthlutað í hlutfalli við atkvæðamagn.

Við höfum allar götur beitt okkur fyrir breytingum hvað þessi mál varðar enda er það í samræmi við stefnu Hreyfingarinnar um lýðræðisumbætur og aðskilnað viðskiptalífs og stjórnmála.  Sem dæmi má nefna að haustið 2010 var lögum um fjármál stjórnmálasamtaka breytt af þingmönnum allra flokka nema Hreyfingarinnar.  Gagnrýndum við málið harðlega þar sem ekki er gætt jafnræðis við úthlutun opinberra fjármuna, fyrirtæki geta áfram lagt stjórnmálasamtökum og stjórnmálamönnum til fé og einstaklingar geta áfram styrkt stjórnmálsamtök í skjóli nafnleyndar.

Til að fylgja málinu eftir höfum við í tvígang lagt fram okkar eigið frumvarp um fjármál stjórnmálasamtaka og hefur Lilja lýst yfir vilja til að gerast meðflutningsmaður þess þegar það verður lagt fram á ný.  Þó að Lilja hafi ekki lagst gegn ríkjandi fyrirkomulagi fyrr en eftir að hún sagði skilið við VG fögnum við sinnaskiptum hennar og eru þau til eftirbreytni fyrir aðra þingmenn.

Virðingarfyllst,

Birgitta Jónsdóttir
Margrét Tryggvadóttir
Þór Saari

Ítarefni:
Frumvarp Hreyfingarinnar: http://www.althingi.is/altext/139/s/1205.html og http://www.hreyfingin.is/frettir/188-maela-fyrir-frumvarpi-um-fjarmal-stjornmalsamtaka.html
6 punktar um frumvarp stjórnmálsasamtaka: http://blog.eyjan.is/tbs/2011/11/24/sex-punktar-um-fjarmal-stjornmalasamtaka/  

 
Senda á Facebook

DSCF4561.jpg
n603389618_1937515_1687.jpg