Úr stefnuskrá Hreyfingarinnar:

Forsíða            Fréttir            Stefnan            Hreyfingin            Á döfinni
Þingmönnum gefin vasabrotsútgáfa af frumvarpi stjórnlagaráðs
Miðvikudagur, 16. nóvember 2011 15:20

Þinghópur Hreyfingarinnar keypti á dögunum 63 eintök af frumvarpi stjórnlagaráðs í vasabrotsútgáfu Daða Ingólfssonar.  Tilgangurinn með kaupunum er að færa öllum sitjandi þingmönnum bókina að gjöf.  Þingmenn Hreyfingarinnar hafa sem kunnugt er gert tillögu um málsmeðferð frumvarpsins, sem nú liggur fyrir stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis, og miðast við þjóðaratkvæðagreiðslu um frumvarp frumvarp stjórnlagaráðs, samhliða forsetakosningum, í júní 2012.  Á myndinni má sjá Birgittu Jónsdóttur afhenda Össuri Skarphéðinssyni sitt eintak.

 
Senda á Facebook

DSCF4603.jpg
DSCF4968.jpg