Úr stefnuskrá Hreyfingarinnar:
| Stöndum með lýðræðislegri kröfu almennings í Egyptalandi |
| Föstudagur, 28. janúar 2011 18:20 |
|
Egyptar búa við ómannúðlegar aðstæður, grundvallar mannréttindi svo sem málfrelsis, trúfrelsi, félagafrelsi er af skornum skammti og aðgangur að upplýsingum er verulega heftur. Nokkrir mótmælendur hafa þegar látið lífið og mikil hætta er á að stjórnvöld hafi skipað öryggissveitum og lögreglu að taka harkalega á þeim sem ætla að taka þátt í uppreisninni. Í landinu á að ríkja forsetaræði en herlögum sem komið var á fyrir meira en þrjátíu árum hafa aldrei verið afnumin. Pyntingar eru daglegt brauð auk þess sem lögreglan í landinu beitir miklu harðræði við að bæla niður alla andstöðu við forsetann. Það er skylda okkar að styðja baráttu Egypta fyrir betra lífi. Við skorum á Jóhönnnu Sigurðardóttur og ríkistjórn Íslands að krefjast þess að stjórnvöld í Egyptalandi hlusti á kröfur almennings auk þess skorum við á ríkisstjórnina að fordæma harðlega ritskoðun, glæpsamlegt harðræði og frelsisskerðingu sem Hosni Mubarak og stjórn hans eru ábyrg fyrir. |
Hver erum við?
Hvað getum við gert?
Þetta höfum við gert!


Almenningur í Egyptalandi hefur ákveðið að taka örlögin í sínar eigin hendur og feta í fótspor Túnisa. Undanfarna daga hafa Egyptar staðið fyrir kröftugum mótmælum gegn forseta landsins, Hosni Mubarak.

