Úr stefnuskrá Hreyfingarinnar:
| Fjármál stjórnmálasamtaka rædd á Alþingi í dag |
| Föstudagur, 03. september 2010 11:45 |
|
Frumvarpið hlaut ekki efnislega umfjöllun í meðferð Allsherjarnefndar og ekki var orðið við beiði Hreyfingarinnar um að gestir kæmu á fund nefndarinnar vegna málsins. Frumvarpið er nú til annarar umræðu á Alþingi og fyrirhugað er að það verði að lögum nú á septemberþinginu. Vinnulag við þetta frumvarp er skýrt dæmi um að Alþingi ætlar ekki að taka tillit til vinnu Rannsóknarnefndar Alþingis og þeirra niðurstaðna sem fram koma í skýrslu hennar.
Áttunda bindi skýrslu RNA ber heitið „Siðferði og starfshættir í tengslum við fall íslensku bankanna 2008“. Í kafla II. 3[1] segir: „Eitt augljósasta tæki viðskiptalífsins til að hafa áhrif á stjórnmálamenn eru bein fjárframlög, bæði til stjórnmálaflokka og einstakra stjórnmálamanna“.[2] Enn fremur segir í niðurlagi kaflans þar sem ályktanir eru dregnar og komið er inn á þá lærdóma sem draga þurfi af fortíðinni: „Leita þarf leiða til þess að draga skýrari mörk á milli fjármálalífs og stjórnmála. Ekki er líðandi að gæslumenn almannahagsmuna gangi erinda einkafyrirtækja með þeim hætti sem gert var í aðdraganda bankahrunsins.”[3] Forseti Alþingis, Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, lofaði mjög skýrslu Rannsóknarnefndarinnar við útkomu hennar og þingmannanefnd sem á að fjalla um skýrsluna, niðurstöður hennar og gera tillögur að viðbrögðum Alþingis, hefur enn ekki lokið vinnu sinni. Því skýtur skökku við að Alþingi skuli flýta sér svo mjög með þetta mál en þess má geta að það er flutt sameiginlega af öllum formönnum Fjórflokksins. Þór Saari, þingmaður Hreyfingarinnar gagnrýndi málið harðlega meðan það var til meðferðar í Allsherjarnefnd og segir það „skýrt dæmi um hvernig rótgróin samtrygging flokkakerfisins kemur í veg fyrir að samfélagið njóti góðs af niðurstöðum Rannsóknarnefndar Alþingis og að gagnsætt, óspillt lýðræði virðist ekki vera á dagskrá“. Ef frumvarpið verður afgreitt óbreytt af Alþinig mun vera til staðar sama umhverfi og samspil peninga, viðskipta, leyndar og stjórnmála og var fyrir hrunið og sem var sú eitraða blanda spillingar sem leiddi til hrunsins. Að sama skapi mun skefjalaus sjálftaka úr almannasjóðum halda áfram og jafnræðissjónarmiðum við úthlutun opinbers fjár til stjórnmálahreyfinga ekki verða gætt. Það er dapurlegt framhald á því Íslandi sem var til fyrir hrun. 3. sept. 2010 ________________________________ [1] Kaflinn heitir „Samskipti stjórnmála og efnahagslífs“ og er á bls. 152 – 170. [2] Sjá bls. 164. [3] Sjá bls. 170 |
Hver erum við?
Hvað getum við gert?
Þetta höfum við gert!


Frumvarp Fjórflokksins til laga um breytingar á lögum um fjármál stjórnmálasamtaka og frambjóðenda verður til umræðu á Alþinig í dag. Frumvarpið gerir ráð fyrir að framlög einstaklinga til stjórnmálamanna og stjórnmálasamtaka megi áfram vera nafnlaus og að fyrirtækjum sé áfram heimilt að styrkja stjórnmálamenn og -flokka. 

