|
Borgarahreyfingin og Hreyfingin í samvinnu við Stjórnarskrárfélagið og Lýðræðisfélagið Öldu boða til opins fundar um frumvarp stjórnlagaráðs Dagskrá: 1. Friðrik Þór Guðmundsson, samvinna Borgarahreyfingarinnar og Stjórnarskrárfélagsins 2. Illugi Jökulsson og Þorvaldur Gylfason, frumvarp stjórnlagaráðs og störf A nefndar, málið almennt, forsagan og framhaldið 3. Fyrirspurnir og umræður, í panel verða framsögumenn auk Margrétar Tryggvadóttur, fulltrúa Hreyfingarinnar í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis Jólabókin í ár, frumvarp Stjórnlagaráðs í vasabrotsútgáfu Daða Ingólfssonar, verður til sölu á staðnum Fundarstjórn verður í höndum Björns Þorsteinssonar
Fundurinn fer fram miðvikudaginn 7. desember 2011 kl. 20.00 - 22.00 í Grasrótarmiðstöðinni, Brautarholti 4, 105 Reykjavík.
|