Úr stefnuskrá Hreyfingarinnar:

Forsíða            Fréttir            Stefnan            Hreyfingin            Á döfinni
Debtocracy

Bíósýningar Gagnauga, Attac og Hreyfingarinnar halda áfram.  

Föstudaginn 27. janúar kl. 20.00 verður heimildamyndin Debtocracy sýnd í Grasrótarmiðstöðinni, Borgartúni 4.

Heimildamyndin Debtocracy eftir Katerina Kitidi and Aris Hatzistefano frá árinu 2011 fjallar um skuldavanda Grikklands og leiðir til að glíma við hann sem ekki eru á dagskrá þarlendra stjórnvalda.  

Í myndinni er stöðu Grikklands líkt við stöðu Argentínu um aldamótin síðustu og tekið dæmi um Ekvador sem land sem tók á sínum skuldavanda með öðrum hætti en alþjóðafjármálakerfið lagði upp með.  Þá er hugtakið ,,Odious Debt" kynnt til sögunnar.

Að lokinni sýningu verða umræður um myndina og hvaða lærdóma má af henni draga í hinu íslenska samhengi.

Allir velkomnir.

 
Yfirlýsing frá þingmönnum Hreyfingarinnar

Formaður Sjálfstæðisflokksins, hefur lagt fram tillögu til þingsályktunar um afturköllun ákæru á hendur Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra.  Tillagan er á dagskrá Alþingis á morgun, föstudaginn  20. janúar 2012, á þriggja ára afmæli búsáhaldabyltingarinnar.

Sú ákvörðun forseta Alþingis að taka tillöguna á dagskrá, og grípa þar með inn í dómsmál, er í hrópandi ósamræmi við fyrri afstöðu forseta í sambærilegu máli; máli níumenninganna svokölluðu,  sem ákærðir voru fyrir árás á Alþingi, máli valdsins gegn skrílnum.  Að taka tillögu sem þessa á dagskrá er að okkar mati bæði Alþingi sem og forseta þingsins til minnkunnar.  Í ljósi þess vantrausts sem ríkir í garð þingsins töldu sjálfsagt margir að botninum væri náð.  Því miður hefur forseta þingsins nú tekist að setja Alþingi enn neðar með þessari þjónkun við þá pólitísku yfirstétt sem hún tilheyrir.

Æðstu embættum samfélagsins fylgja ábyrgð og skyldur.  Því hlýtur að vera eðlileg krafa að þeir sem embættunum gegna axli ábyrgð á störfum sínum. Í því sambandi er mikilvægt að hafa í huga að málið gegn fyrrverandi forsætisráðherra byggist á lögum um ráðherraábyrgð.

 
Senda á Facebook

22049_266376849618_603389618_4515246_359833_n.jpg
22049_270753179618_603389618_4548152_2140459_n.jpg